Okkar áhersla “Einn flugmiði alla leið”
Þegar ferðast er frá Íslandi um langan veg, t.d. til Asíu, þá þarf iðulega að nýta sér þjónustu tveggja eða fleiri flugfélaga. Komi upp seinkun á flugi þá geta ferðamenn verið í töluverðum vanda missi þeir af tengiflugi. Við þessar aðstæður getur skipt miklu máli að vera með bókaðan flugmiða alla leið á áfangastað eins og við hjá ferdin.is leggjum áherslu á við okkar viðskiptavini því þá er „séð um farþegana“ og þeim komið á áfangstað. Séu ferðalangar ekki með bókaðan einn miða þá geta þeir lent í töluverðum vandræðum við það að komast á áfangastað verði seinkun á flugi ein og gerðist í Keflavík bæði 25. og 28. Júní. Sé bókað flug með leitarvélum á netinu þá þarf iðulega að kaupa allt að 4 miða til þess að komast á áfangastað og vitum við dæmi þess að ferðamenn hafa lent í verulegum vandræðum vegna þessa.
Við hjá Ferðin.is leggjum mikla áherslu á að ef fólk er að fljúga fleiri en einn ”legg” og þurfi tengiflug að það kaupi miða alla leið. Það getur verið dýrt að spara sér 10-15 þúsund krónur með því að kaupa tvo miða, missa síðan af tengiflugi og þá þurfa að kaupa annan miða frá Evrópu til Asíu á fullu verði.
Posted in: Fréttir
Leave a Comment (0) ↓