Borneó, meira en aðeins einstaklega falleg náttúra
8 dagar/7 nætur

Næseabe Proboscis Borneo ISTEf þið óskið eftir öflugri menningar og náttúru upplifunum þá er þetta ferðin fyrir ykkur. Andrúmsloftið í Kuching er frábært, allstaðar er ykkur tekið brosandi og vinalega af íbúum bæjarins. Sarawak Safnið er með því áhugaverðasta í bænum, en fyrir utan bæinn bíða nefaparnir, orangutangarnir og mikið af framandi fulga tegundum eftir að verða mynduð. Þið gistið í 2 nætur hjá Iban – fólkinu í langhúsum þeirra við fljótið. Þið fylgist með fyrrum veiðimannalífi í þessu friðsama umhverfi og farið einnig út að veiða á fljótinu.

Dagur 1: Koma til Kuching
Þegar þið komið til Sarawaj sem er höfuðborg Kuching tekur enskumælandi leiðsögumaður á móti ykkur og keyrir ykkur í bæinn þar sem þið gistið á Hótel Merdeka Palace
Gisting: Merdeka Palace, standard herbergi.

Dagur 2: Kuching
Kuching er án efa þægilegasti og mest spennandi bær á Borneo og mörgum þykir bæinn vera sá mest aðlaðandi í suðaustur Asíu. Þið farið í skoðunarferð um bæinn með enskumælandi leiðsögumanni okkar. Hér heimsækið þið m.a. Sarawak safnið og heyrið söguna um “kattaborgina” við stórt fljótið. Í Kuching eru mörg græn og falleg útivistarsvæði og vinalegt fólk sem alltaf er tilbúið að aðstoða.
Þið getið hlakkað til að heimsækja sölutorgið sem er í elsta hluta Kuching, einnig kallað “antik-arkaden” vegna mikils úrvals af antikvörum og handunnum listaverkum sem hægt er að kaupa. Í India Street er selt mikið að litríkum vefnaðarvörum, fötum og leirmunum. Þið komið aftur á hótelið eftir hádeigisverð.
Gisting: Merdeka Palace, standard herbergi (M)

Dagur 3: Kuching – Bako Þjóðgarður
Það verður náð í ykkur eftir morgunverð og þið keyrð að fiskistaðnum Bako, sem er klukkutíma keyrsla frá hótelinu. Héðan er silgt í ½ tíma að þjóðgarðinum þar sem hin villtu dýr taka á móti ykkur í náttúrulegu umhverfi. Í trjákrónunum sveifla hinir frægu nefapar sér á milli langurer- og makak apa, á meðan villisvín, hyrtir og stór skriðdýr halda til á skógarbotninum. Það heyrist mikill söngur og tíst frá trjákrónunum og mikið af framandi fugla tegundum sveima um loftin. Landslagið er mjög breytilegt allt frá hitabeltis regnskógi til fenjamýri og vinsælla strandsvæða. Þið getið gengið frítt um merktar gönguleiðir, farið í sjóinn við strendurnar og notið sólarlagsins yfir suður kínverska hafinu. Kvöldverðurinn er borinn fram í veitingastað aðalstöðvanna. Fyrir ykkur sem viljið upplifa meira, þá er möguleiki á næturgöngu um regnskóginn áður en þið leggist til svefns.
Gisting: í aðalstöðvunum (einföld gisting) (M, H, K)

Dagur 4: Bako þjóðgarðurinn – Kuching
Fyrir hádegi eruð þið í “Edens garði” við mælum með að þið gangið um snúna stíga garðsins. Njótið ilmsins af regnskógi og hins ótrúlega hljóðspils. Kanski rekist þið aftur á hinn sérstaka nefapa eða heyrið öskrin í makak öpunum frá trjátoppunum. Þið borðið hádeigisverð með mikið af góðum upplifunum í bakpokanum og haldið síðan aftur til Kuching með bát og rútu. Þegar þið komið til Kuching innritið þið ykkur aftur á hótleið.
Gisting: Merdeka palace, standard herbergi. (M, H)

Dagur 5: Orangutang-miðstöð og langhús Iban fólksins.
Það er ekki ólíklegt að þessi dagur verði besti dagur ferðarinnar. Það verður náð í ykkur á hótelið eftir morgunverð og þið keyrið til hjálpar stöðvar fyrir orangutang hjá Semengoh, þar sem hópur rauðhærðra apa býða ykkar. Það er stórkostlegt að upplifa orangutana í sínu náttúrulega umhverfi. Eftir stutta gönguferð um skóginn komið þið að sléttu þar sem þjóðgarðsverðir bíða ykkar. Eftir nokkrar mínútur skrjávar í tjánum í kringum ykkur. Ungu aparnir sem eru enn hálf ósjálfbjarga, koma 2svar á dag til að fá bætiefni við þá fæðu sem þeir finna sjálfir í skóginum.

Eftir heimsóknina í garðinn er haldið áfram að Lemanak-fljótinu. Á þessari 4 tíma löngu keyrslu upplifið þið Sarawak sem er friðsælt og í algjörri andstæðu við iðandi borgarlífið í Kuching. Á leiðinni er stoppað til að sjá villtar orkedéer, kjötplöntur og hvernig chili, pipar og kakó er ræktað. Við Serian er tími til að rölta um litríka markaði bæjarins, þar sem uppskeran frá ökrunum er seld. Þið fáið hádeigisverð á einum af veitingastöðum staðarins. Við Lemanak fljótið farið þið um borð í langbáta Ibans fólksins og eftir klukkutíma siglingu í gegnum fallegt landslagið komið þið að þorpi “höfuðkúpu veiðimanna”. Þið gistið í 120 m lang húsi á stólpum. Notið seinnipartinn í félagsskap íbúanna eða farið í frískandi sund í fljótinu. Eftir kvöldverð getið þið notið þess að vera á breiðum svölum lang-hússins en þær eru kallaðar “raui” og hlustað á hljóð skordýranna, heyrt um litskrúðuga menningu iban fólksins og spennandi líf þeirra í regnskóginum. Aldrei að vita nema ykkur verði boðið uppá glas af heimabrugguðu pálmavíni.
Gisting: Einföld gisting hjá Iban fólkinu. (M, H, K)

Dagur 6: Langhús Iban fólksins.
Í dag er prógrammið ekki fastlagt, hér skiptir veðrið miklu máli en einnig hvað Iban fólkið finnur uppá að gera. Það mun ávalt vera möguleiki á ferð lengra upp með ánni og heimsækja langhús nágrananna, eða skógarferð að sjá akrana hjá Iban fólkinu. Kvöldið er frjálst og á eigin vegum.
Gisting: Einföld gisting hjá Iban fólkinu. (M,H,K)

Dagur 7: Lemanak fljótið, langhús og Kuching
Eftir morgunverð er tími til að taka síðurstu myndirnar og kveðja infædda áður en haldið er af stað í langbát niður fljótið. Síðan er farið með rútu til Kuching en stoppið á leiðinni til að fá hádegisverð á kínverskum veitingastað.
Gisting: Merdeka Palace í Kuching. (M,H)

Dagur 8: Aftur til Íslenda eða lengja ferðina
Fríið er á enda nema þið óskið eftir að lengja fríið. Það verður náð í ykkur á hótelið í Kuching og þið keyrð út á flugvöll, þaðan fljúgið þið frá Singapore til Íslands

M=Morgunverður, H=Hádegisverður, K=Kvöldverður

Allt þetta er innifalið í verðinu
*
Dagskrá og máltíðir eins og í leiðarlýsingu, enskumælandi leiðsögumaður
* 4 nætur á Merdeka Palace í standard herbergi
* 2 nætur í “langhúsi” hjá Iban fólkinu
* 1 nótt í Bako þjóðgarðinum
* Dagsplanið getur breyst aðeins frá því sem skrifað er.

Verðin innihalda ekki:
*
Millilandaflug frá Íslandi
* Forfallatrygging ásamt þjóðfé m.m.
* Ferðin er farin með minnst 2 þátttákendur.