Borneó “Wildlife” gönguferð og sólarströnd
10 dagar/9 nætur
Í þessari 10 daga spennandi hringferð um norðurhluta Borneo, Sabah, heimsækið þið skjaldbökueyjuna, Selingan Island, ásamt því að sjá nef apa, villta fíla, krókódíla og orangutanger í frumskógi Sukaus. Þið endið ferðina með 4 daga strandfríi fyrir norðan Kota Kinabalu.
Dagur 1: Kota Kinabalu
Það verður náð í ykkur á flugvöllinn þegar þið komið til Kota Kinabalu og þið keyrð í 20 mín. í bæinn, þar sem þið innritið ykkur inn á ferðamanna hótelið, Shangri-La.
Gisting: Shangri-La í superior herbergi.
Dagur 2: Kota Kinabalu
Dagurinn er frjáls og á eigin vegum. Þið getið slappað af, farið og skoðað bæinn sem var nær alveg eiðilagður í heimstyrjöldinni síðari, eða farið í skoðunarferð sem boðið er uppá.
Gisting: Shangri-La í superior herbergi. (M)
Dagur 3: Kota Kinabalu – Sandakan – Selingan Island
Þið vaknið snemma og borðið morgunverð, því planið er að leggja af stað ca. kl. 07.30 með til Sandakan. Á flugvellinum í Sandakan verður tekið á móti ykkur og þið keyrð niður að höfninni sem tekur ca 45 mín. Héðan farið þið sem hraðbát til Selingan Island – falleg klukkutíma sigling. Eftir að þið hafið skráð ykkur inn á Selingan Island Resort þá er restin af deginum frjáls og á eigin vegum.
Seiling Island hefur verið verndað svæði fyrir skjaldbökur frá árinu 1977, og hvert ár koma meira en þúsund skjaldbökur á eyjuna til að verpa. Eggjunum er safnað saman og komið fyrir undir stóru neti til að vernda þau m.a. fyrir ránfuglum. Þegar eggin klekjast út eru litlu skjaldbökurnar teknar og hlúð að þeim þar til þær hafa betri möguleika á að verjast fjendum sínum, síðan er þeim sleppt út í hið stóra suður kínverka haf til að lifa þar frjálsar.
Safnið á eyjunni gefur góða mynd af hættulegu lífi sem bíður skjaldbakanna fyrstu æviár þeirra.
Eftir kvöldmatinn bíðið þið á veitingastaðnum þar til myrkrið skellur á og hin aðdáunarverðu skriðdýr koma upp á ströndina. Þið farið í hóp niður á strönd þar sem þið sjáið m.a. hvar stór græn skjaldbaka hefur grafið 60 cm djúpa holu og er að leggja meira en 50 egg. Í sannleika er þetta grípandi upplifun. Og ekki er síður spennandi að setja eina af litlu skjaldböku ungunum út í hafið. Kannski lifir þín skjaldbaka af og kemur aftur til eyjunnar ár eftir ár til að verpa.
Gisting: Selingan Island Resort. (M, H, K)
Dagur 4: Selingan Island – Sandakan – Sepilok (orangutanc center) – Sukau Rainforest
Þið farið frá eyjunni um morguninn og siglið aftur til Sandakan. Héðan farið þið til Sepilok Rehabilitation Centre, þar sem hópur rauðhærðra apa bíður ykkar. Það er stórkostlegt að upplifa orangutana í sínu náttúrulegu umhverfi. Eftir stutta gönguferð um skóginn komið þið að sléttu þar sem þjóðgarðsverðir bíða ykkar. Eftir nokkrar mínútur skrjávar í tjánum í kringum ykkur. Ungu aparnir sem eru enn hálf ósjálfbjarga, koma 2svar á dag til að fá bætiefni við þá fæðu sem þeir finna sjálfir í skóginum.
Héðan keyrið þið síðan að fljótinu, þar sem þið siglið með bát til Sukau Rainforest. Næstu tvo tíma siglið þið á lengsta fljóti Sabahs, Kinabatangan, á meðan hin villta náttúra eykst og verður þéttari og tréin hærri. Í trjákrónunum situr hópur af forvitnum nef öpum sem fylgjast með bátnum þegar hann siglir rólega niður fljótið.
Þegar þið komið til Sukau Rainforest Lodge er hádeigisverðurinn borinn fram við kertaljós síðan verður haldin ljósmynda sýning og fyrirlestur um þennan stórkostlega frumskóg af hæfum leiðsögumanni sem er með mikla vitneskju um náttúruna og umhverfið. Restin af deginum er til að slappa af, þið getið t.d. setið á breiðum svölunum og hlustað á “söng” skordýranna.
Gisting: Sukau Rainforest Lodge. (M,H,K)
Dagur 5: Sukau Rainforest og sigling á Kinabatangan fljóti
Þið vaknið eflaust við hljóðin í makak-öpunum og fyrsta safari ferðin á fljótinu byrjar kl 06.00. Dýrin eru líflegust á morgnana – kannski er heppnin með ykkur og þið sjáið sum af stóru dýrum regnskógarins eins og orangutangana, eða lítinn flokk af villtum fílum, langhentu gibbon apana eða hinn sérstaka nef apa. Ef veðrið er gott er einnig tími fyrir stutta gönguferð um frumskóginn. Ykkur verður einnig boðið að taka þátt í verkefni sem vinnur að því að gróðursetja fleiri tré á svæðinu, svo maður komist hjá því að sumar tegundir deyja út. Þið komið aftur á hótelið um kl 09.00 og borðið morgunverð.
Eftir hádegi farið þið upp með fljótinu til Sukau Village, héðan siglið þið áfram eftir fljótinu og heimsækið smáþorp. Á leiðinni er einnig stoppað við litla eyju í Kelenanap-vatninu og þar hafið þið möguleika á stuttri gönguferð. Eftir sólsetur og gómsætan kvöldverð hjá kokkinum Joes er tími fyrir síðustu safari ferðina. Hinir sérstöku kastarar eru festir á bátinn og nú veltur á leiðsögumanninum að lýsa á dýralífið á fljótinu. Haldið fingrunum fyrir innan bátinn, krókódílarnir fara á veiðar eftir að mirkrið skellur á!
Gisting: Sukau Rainforest Lodge. (M, H, K)
Dagur 6: Sukau – Sandakan – Kota Kinabalu
Þið siglið frá þjóðgarðinum til Sandakan. Þegar þið komið þangað borðið þið hádegisverð í miðbænum og ef tími gefst þá er stutt skoðunarferð um bæinn áður en þið keyrið út á flugvöll. Um kl 14.00 fljúgið þið til Kota Kinabalu. Hér bíður bíll eftir ykkur og þið eruð keyrð á hótel í bænum.
Gisting: Beringgis Beach Resort í standard herbergi. (M, H)
Dagar 7-9: Kota Kinarut
Eftir mikla og góða upplifun í þessari vhringferð er núna tími til að slappa af og “melta” hinar mörgu upplifanair ferðarinnar. Gott ferðamannahótelið er staðsett við hvíta sandströndina en ef þið óskið eftir meira lífi síðustu dagana í fríinu þá eru miklir möguleikar bæði fyrir fullorna og börn. Þið getið farið á fílabak eða farið í ferð til fiskiþorpsins í grendinni.
Gisting: Beringgis Beach Resort í standard herbergi. (M)
Dagur 10: Keyrsla á flugvöll
Fríið er á enda, það verður náð í ykkur á hótelið og þið keyrð út á flugvöll í Kota Kinabalu. Héðan getið þið valið að fljúga til Danmerkur eða lengt fríið og farið á annan stað í Asíu. (M)
M = Morgunverður H = Hádegisverðurur K = Kvöldverður